NÁM || NÁMSKEIÐ || BALÍ

NÁM Í ANDLEGRI ENKAÞJÁLFUN
NÝ ÖNN HEFST Í SEPTEMBER / JANÚAR / APRÍL

3 anna nám fyrir þig sem vilt dýpka skilning þinn á sjálfum þér, öðlast öflug verkfæri sem hjálpa þér að taka á móti þínum lífsins verkefnum á allt annan hátt en áður. Læra síðan að miðla þessari árangursríku nálgun áfram til annarra.

LÆRÐU ÞAÐ SEM ÞÉR VAR ALDREI KENNT

Að skilja sjálfa þig, aðra og lífið á dýpri hátt. Þegar þú skilur betur hugann þinn, sálina þína, innsæið, tilfinningarnar, hugsana- og hegðunarmynstrin þín eða varnarkerfið þitt, þá öðlast þú nýja sýn á sjálfa þig, aðra í kringum þig og lífið almennt.
Þú lærir að mæta betur áskorunum, taka á móti lífsins upp- og niðursveiflum með meiri skilningi og styrk.
Nám í andlegri einkaþjálfun gefur þér þekkingu og öflug verkfæri til að styrkja eigin vegferð og læra að styðja aðra.

EINSTAKLEGA ÁRANGURSRÍKT

„Að skrá mig í nám í andlegri einkaþjálfun hjá Hrafnhildi er ákvörðun sem að ég sé ekki eftir, hún miðlar þekkingunni af svo mikilli hlýju og fagmennsku. Námið hefur eflt mig sem manneskju og gefið mér tækifæri til að skoða sjálfa mig á þann hátt sem að ég hefði annars ekki gert, þannig vaknaði ég með að sjá eigin styrkleika sem og veikleika og vinna með þá.  Ég mæli heilshugar með námi í  andlegri einkaþjálfun fyrir alla sem vilja vaxa sem einstaklingar og dýpka skilning sinn á lífinu, þetta er nám fyrir öll kyn, ekki bara konur. Ég kem út úr þessu námi sem betri manneskja með dýpri skilning og meira æðruleysi. 
Endalaust þakklát fyrir þessa vegferð, takk fyrir mig elsku Hrafhildur <3
– Hildur Salína

“Þegar ég skoðaði námið í Andlegri einkaþjálfun þá skoðaði ég umsagnir með náminu. Sú hugsun sem kom upp hjá mér var „einmitt, auðvitað bjargar eitthvað svona nám öllu“ íslenska kaldhæðnin var á fullu hjá mér. Núna þarf ég að éta þessa hugsun ofan í mig, því námið hefur bjargað minni geðheilsu, mínu sjálfsáliti og trú minni á mannkynið. Námið hefur breytt minni hugsun til hins betra fyrir mig”
– Auðbjörg Ósk

ATVINNUTÆKIFÆRIÐ

Ef þú lítur í kringum þig, sérðu þá hversu margir glíma við einhvers konar vanlíðan?
Kvíða
Kulnun
Lágt sjálfsmat
Depurð
Félagsfælni
Áfallastreitu
Einmanaleika
Þunglyndi
… listinn er langur!
Af hverju ætli svo margir séu að upplifa þetta?

Getur verið að okkur hafi einfaldlega aldrei verið kennt það sem skiptir mestu máli, að læra á okkur sjálf og skilja okkur betur?
Okkur er kennt ótrúlega margt í gegnum lífið, en við fáum sjaldan leiðsögn í því að skilja okkar eigin huga, tilfinningar og innri heim.
Við lærum ekki:
✓ Hvernig hugurinn okkar virkar
✓ Hvernig tilfinningar hafa áhrif á okkur
✓ Hvernig hugsana- og hegðunarmynstur mótast
✓ Hvernig æska okkar og lífsreynsla getur haft áhrif á líf okkar
✓ Hvernig við þekkjum varnarkerfið okkar og varnarviðbrögð
✓ Hvernig við hlustum á okkur sjálf og hlúum að okkar eigin innri kjarna

Við förum í gegnum lífið án þess að fá raunveruleg verkfæri til að skilja okkur sjálf og takast betur á við þær áskoranir sem lífið færir okkur.
Þarna kemur nám í andlegri einkaþjálfun sterkt inn.
Þetta er djúpt og innihaldsríkt nám þar sem þú öðlast þekkingu, skilning og verkfæri til að skilja sjálfa þig, aðra og lífið á mun dýpri hátt.

Þörfin fyrir andlega einkaþjálfara fer vaxandi
Hversu margir einkaþjálfarar eru til staðar þegar fólk vill styrkja líkamlegt form sitt?
En hversu margir eru til staðar þegar fólk vill styrkja sitt andlega form?
Það vantar jafnvægi þarna á milli.

Við vitum að líkamleg heilsa skiptir máli, en andleg heilsa er ekki síður mikilvæg og jafnvel þarf að byrja þar!
Þörfin fyrir fólk sem hefur þekkingu og verkfæri til að styðja aðra hefur aldrei verið meiri.
Nám í andlegri einkaþjálfun er ekki skyndilausn og er lengd námsins einmitt parturinn af árangrinum sem næst. Þetta er vegferð þar sem þú lærir, þroskast og byggir upp færni sem getur nýst þér alla ævi, bæði fyrir þína eigin vegferð og í starfi með öðrum. Ótrúlega dýrmæt vegferð.

FJÁRFESTING TIL FRAMTÍÐAR

Heildarverð fyrir 3 annir (15 mánuðir): 590.000 kr.
Allt að 15 mánaða greiðsludreifing (bæði debet og kredit)
Skráningargjald: 50.000 kr. til að festa pláss

KENNARAR || ANDLEGIR LEIÐBEINENDUR

KATRÍN KRISTINSDÓTTIR

Ég heiti Katrín Kristinsdóttir og er þriggja barna móðir að norðan. Ég er menntaður hjúkrunarfræðingur og andlegur einkaþjálfari.
Ég hef unnið við að hjálpa fólki í mjög langan tíma og þegar ég byrjaði í andlegri einkaþjálfun fann ég strax hvað það átti vel við mig og hversu frábær viðbót það væri með hjúkruninni. Í dag gæti ég vel hugsað mér að vinna eingöngu sem Andlegur einkaþjálfari. Að finna gleðina og orkuna sem fylgir því að hjálpa öðrum að byggja sig upp andlega er svo dásamlegt.

ERNA ÓSK

Ég heiti Erna Ósk og er andlegur einkaþjálfi, jóga kennari og art þjálfi ( aggression replacement training) Èg brenn fyrir að deila visku minni, leiðbeina öðrum og hjálpa fólki að líða betur. Öll sú viska sem ég hef vil ég deila með öðrum svo þeir geti notið góðs af . Ég hef öðlast margskonar þekkingu í gegnum lífið, bæði góða og slæma sem nýtist mér sem verkfæri í dag. Námið í andlegri einkaþjálfun færði mér verkfærin til að nýta reynsluna mína til góðs. Námið færði mér töfra, ég sé lífið með öðrum augum og allir erfiðleikar eru miklu þægilegri með verkfærin og viskuna sem nýtist mér til æviloka.

Scroll to Top