Nám í andlegri einkaþjálfun
Ný önn hefst í september 2026

VILTU VERÐA ANDLEGUR EINKAÞJÁLFARI?

Viltu vera samferða okkur og öðrum dásemdar sálum í gegnum námið og vera partur af hópi sem hefur það sameiginlegt að vera að dýpka sjálfan sig andlega og vera samferða á þessari dýrmætu vegferð.
Geta spjallað og speglað við aðra sem tala sama „tungumálið“

3. ANNA FJARNÁM

Viltu dýpka tengslin við sjálfa þig og læra að hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama?
3 anna fjarnám þar sem þú ferð í djúpa sjálfsuppbyggingu, færð verkfæri og tól til að skapa jákvæðar breytingar í eigin lífi og færð þekkingu til að miðla þessari árangursríku nálgun áfram til annarra. Einstaklega djúp og skemmtileg vegferð.

“Þegar ég skoðaði námið í Andlegri einkaþjálfun þá skoðaði ég umsagnir með náminu. Sú hugsun sem kom upp hjá mér var „einmitt, auðvitað bjargar eitthvað svona nám öllu“ íslenska kaldhæðnin var á fullu hjá mér. Núna þarf ég að éta þessa hugsun ofan í mig, því námið hefur bjargað minni geðheilsu, mínu sjálfsáliti og trú minni á mannkynið. Námið hefur breytt minni hugsun til hins betra fyrir mig”
– Auðbjörg Ósk

HVAÐ LÆRI ÉG Í NÁMINU?

Hvað lærir þú í náminu?
Í náminu ferð þú í djúpa og markvissa sjálfsuppbyggingu þar sem þú lærir að skilja sjálfa þig, hugann og tilfinningar þínar á nýjan hátt. Smátt og smátt byggir þú upp sterkari tengsl við sjálfa þig og öðlast verkfæri sem nýtast þér alla ævi.

Í náminu lærir þú meðal annars að:
– Skilja hvernig fortíðin, uppeldið og lífsreynslan hafa mótað þig.
– Þekkja og vinna með varnarkerfið og gömul lífsmynstur.
– Ná betri tökum á huganum og vera meira til staðar í núinu.
– Skilja tilfinningar þínar og mæta þeim af mildi í stað þess að berjast við þær.
– Efla sjálfstraust, sjálfsást og innri frið.
– Skoða samskipti og læra hvernig þau endurspegla innri líðan þína.
– Vinna með fyrirgefningu og sleppa því sem heldur aftur af þér.
– Kynnast undirmeðvitundinni og áhrifum hennar á daglegt líf.
– Dýpka tengslin við innsæið og innri kjarnann.
– Finna skýrar hvað skiptir þig raunverulega máli og hvert þú vilt stefna.

ER NÁMIÐ FYRIR MIG?

Ef þú svarar meirihlutanum játandi, þá er þetta eitthvað sem þú ættir virkilega að skoða nánar!

– Viltu koma þér í þitt allra besta andlega form?
– Öðlast aukið sjálfstraust, innri frið og hugarró?
– Dreymir þig um að starfa við að hjálpa öðrum að líða margfalt betur?
– Ertu gjörn/gjarn á því að fólk leiti til þín til að fá ráðleggingar eða álit?
– Er þinn innri kjarni að kalla á breytingar í nærumhverfinu eða heiminum öllum?
– Finnur þú innra með þér að lífið er miklu meira virði en bara að vinna 9-17 og greiða reikninga?
– Ertu leitandi að tilganginum þínum eða réttri hillu í lífinu?
– Hefur þú upplifað erfiðleika í þínu lífi, kvíða, þunglyndi, krefjandi æsku, krefjandi samskipti, áföll, vera týnd með sjálfan þig eða annað og gætir hjálpað öðrum í sömu sporum?
– Langar þig að verða þinn eigin herra og starfa við það sem þú elskar?
– Langar þig að byggja upp starfsframa sem gefur þér frelsi til að starfa hvar sem er í heiminum?
– Langar þig að byggja upp starfsframa sem gefur þér frelsi til að starfa hvenær sem er yfir daginn eða þegar það hentar þér?
– Dreymir þig um að velja annað líf fyrir sjálfan þig heldur en það sem samfélagið ætlast til af þér?
– Ertu týnd í lífinu, á krossgötum eða einfaldlega að mygla í vinnunni sem þú ert í núna og vilt róttækar breytingar?
– Ertu með hugrekki til að stíga vel út fyrir þægindarammann?
– Viltu starfa sem andlegur einkaþjálfari og búa til árangursríkt námskeið í andlegri einkaþjálfun?

Þá er þetta nám og starf sniðið fyrir þig!

FYRIR HVERJA ER NÁMIÐ?

Alla þá sem hafa áhuga á andlegri heilsu og vilja það allra besta fyrir sjálfan sig og aðra. Margir fara í námið eingöngu fyrir sína sjálfsuppbyggingu, aðrir vilja verða andlegir einkaþjálfarar og starfa sem slíkir í fullu eða hlutastarfi, á meðan aðrir vilja nýta námið inn í núverandi starf. Endalausir möguleikar.

Það er líka í góðu lagi að vita ekki alveg hvað maður vill gera með þetta nám og það skýrist yfirleitt miklu betur þegar nemandinn er kominn vel á veg inn í námið, þá fer allt nefnilega að verða skýrar. Það er eitt af því dásamlega við að fara í markvissa innri vinnu að þú ferð að heyra miklu betur í kjarnanum þínum og hvað þú vilt sjá fyrir sjálfa þig.

HVENÆR BYRJAR NÁMIÐ?

Í september hefst ný önn í námi sem mun ekki aðeins breyta þínu lífi heldur einnig lífi annarra! En við verðum alltaf, að mínu mati, að byrja á okkur sjálfum fyrst. Ótrúlega fjölbreytt, djúpt og skemmtilegt 3ja anna nám sem leiðbeinir þér í þitt allra besta andlega form og hvernig á að miðla því áfram til annarra.

Tekið er inn í námið 3svar sinnum yfir árið.
September
Janúar
Apríl (sumarönn)

EINSTAKLEGA ÁRANGURSRÍKT

„Að skrá mig í nám í andlegri einkaþjálfun hjá Hrafnhildi er ákvörðun sem að ég sé ekki eftir, hún miðlar þekkingunni af svo mikilli hlýju og fagmennsku. Námið hefur eflt mig sem manneskju og gefið mér tækifæri til að skoða sjálfa mig á þann hátt sem að ég hefði annars ekki gert, þannig vaknaði ég með að sjá eigin styrkleika sem og veikleika og vinna með þá.  Ég mæli heilshugar með námi í  andlegri einkaþjálfun fyrir alla sem vilja vaxa sem einstaklingar og dýpka skilning sinn á lífinu, þetta er nám fyrir öll kyn, ekki bara konur. Ég kem út úr þessu námi sem betri manneskja með dýpri skilning og meira æðruleysi. 
Endalaust þakklát fyrir þessa vegferð, takk fyrir mig elsku Hrafhildur <3 „
– Hildur Salína

„Ég hreinlega elska þetta nám og ég elska hvað ég er að læra og skilja mikið um sjálfa mig og fólk bara almennt, það er eitthvað svo mikið að opnast fyrir mér gagnvart lífinu almennt ❤️“

“Þetta nám breytti öllu hjá mér og opnaði á svo margt fallegt. Hrafnhildur kemur fram á svo fallegan og mennskan hátt og talar við mann sem jafningja. Þetta nám er svo rosalega fagmannlega sett upp, mjög skipulagt og skýrt. Svo skemmir ekki hvað þetta allt saman er ótrúlega skemmtilegt!”
– Rakel Sigðurðardóttir

ATVINNUTÆKIFÆRIÐ

Ef þú skoðar umhverfið þitt, eru margir í kringum þig í einhvers konar vanlíðan? Ef þú veltir því fyrir þér, af hverju ætli það séu svona margir með þunglyndi, kvíða, depurð, lágt sjálfsmat, félagsfælni, kulnun, áfallastreitu eða annað út í samfélaginu? Getur verið að það sem við erum að gera dagsdaglega, eins og að fylgja „óskrifuðum“ kröfum samfélagsins, sé einfaldlega ekki að virka fyrir okkur lengur? Getur verið að ein af ástæðunum sé einnig að við höfum einfaldlega ekki fengið neina andlega leiðsögn? Engin kennsla í að læra inn á okkur sjálf og okkar innri kjarna? Enginn kennsla í tilfinningum eða í ólíkum lífsverkefnum sem geta bankað á dyrnar. Enginn kennsla hvernig við eigum að grípa okkur sjálf, hlúa að okkur sjálfum, hlusta á okkur sjálf (innri kjarna og innsæið). Enginn fræðir okkur um æskuna/áföllin og hversu gríðarleg áhrif hún hefur á allt okkar líf. Enginn kennir okkur á varnarkerfið okkar eða varnarviðbrögðin. Enginn kennir okkur að þekkja hugann okkar og skilja hann betur, hvernig við náum að temja drekann! Við fáum einfaldlega enga kennslu! En námið í andlegri einkaþjálfun mun kenna þér þetta allt saman og meira til. Djúpt og innihaldsríkt nám þar sem þú munt skilja sjálfan þig, aðra og lífið margfalt betur.

Það er svo mikil þörf fyrir andlega einkaþjálfara út í samfélagið, þar sem það er löngu kominn tími til að slík kennsla fari fram. Það er ekki eðlilegt að vera með langvarandi þunglyndi, kvíða, kulnun, félagsfælni, lágt sjálfmat eða annað, því það eru til ýmiss tæki og tól sem fólk veit almennt ekki af og þar kemur námið sterkt inn. Einstaklega árangursrík vegferð – engar skyndilausnir!

– Hvað eru margir starfandi einkaþjálfarar til taks þegar þú vilt koma þér í aukið líkamlegt form?
– En hvað eru margir andlegir einkaþjálfarar til taks þegar þú vilt koma þér í aukið andlegt form?
Nefnilega! Það er ekkert jafnvægi þarna á milli og við ætlum að breyta því, þú og ég!

Þetta „quote“ eftir Dalai Lama segir allt sem segja þarf!
„The planet does not need more successful people. The planet desperately needs more peacemakers, healers, restorers, storytellers and lovers of all kinds“

Ef þú ert sammála þessu þá höfum við verk að vinna!

FJÁRFESTING TIL FRAMTÍÐAR


Heildarverð: 590.000 kr. (3 annir – 15 mánuðir)
*Hægt að skipta greiðslum á alla kanta og hámark með 15 mánaða greiðsludreifingu
* 10% staðgreiðslu afsláttur
*Staðfestingagjald: 50.000 kr. (til að festa pláss við skráningu og er óafturkræft)
*Takmarkað pláss

Framtíðin er þín!

Scroll to Top